
Svikaherferð – falskar „staðfestu að þú sért manneskja“ prófanir
Netöryggissveitin CERT-IS hefur greint allmargar svikasíður sem árásaraðilar hafa komið fyrir á íslenskum vefsvæðum. Síðurnar birta falska prófun sem á að staðfesta að notandinn sé manneskja (e. verify you are human) og reyna þannig að blekkja notendur til að keyra skipanir sem sækja og setja upp spilliforrit í tölvum þeirra.









