Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins og netöryggissveitin CERT-IS hafa fengið aðgang að sérhæfðu netöryggislíkani frá OpenAI. Líkanið er hluti af Daybreak, framtaki OpenAI á sviði netvarna. Þar sem slík tækni getur nýst bæði til varna og árása er aðgangur að líkaninu aðeins veittur að undangengnu mati, í gegnum Government Trusted Access for Cyber (GTAC).
Markmiðið er að kanna hvernig gervigreind getur stutt sérfræðinga við netvarnir, meðal annars við yfirferð kóða, greiningu veikleika og forgangsröðun viðbragðs við þeim, mat á ógnum og viðbrögð við netöryggisatvikum. Líkanið getur til dæmis bent á veikleika í kerfum og aðstoðað við að útbúa og prófa lagfæringar, svo hægt sé að loka öryggisholum áður en óprúttnir aðilar finna þær og misnota.
Með aðganginum gefst Umbru og CERT-IS tækifæri til að byggja upp þekkingu og reynslu af nýrri tækni sem getur styrkt netvarnir og öryggi stafrænnar þjónustur ríkisins sem almenningur notar daglega. Sérfræðingar stýra notkun líkansins, meta niðurstöður þess og taka allar ákvarðanir um aðgerðir.
Rík áhersla verður lögð á ábyrga og örugga nýtingu tækninnar. Notkunin er bundin við skilgreind verkefni í þágu netvarna, háð skýrum öryggiskröfum og einskorðast við þau kerfi og innviði sem viðkomandi hafa heimild til að vinna með.