Tilkynna atvik
Vinna við nýtt tilkynningaform CERT-IS er á lokametrunum, við þökkum skilninginn og biðlundina sem sýnd hefur verið.
Þar til þeirri vinnu lýkur skal senda tilkynningar á netfangið [email protected]. Hægt er smella hér fyrir til að opna sniðmát að tilkynningu með vefpósti til CERT-IS.
CERT-IS er undanskilið upplýsingalögum og allar upplýsingar í tilkynningum eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál nema annað sé tekið fram í tilkynningu. Ef um mjög viðkvæmar upplýsingar er um að ræða mælum við með því að notast við PGP dulkóðun.
CERT-IS fylgist aðeins með tilkynningum á milli klukkan 8:00-16:00 á virkum dögum. Tilkynningar sem berast utan hefðbundins vinnutíma eru meðhöndlaðar næsta virka dag. Utan dagvinnutíma geta mikilvægir innviðir haft samband í gegnum bakvaktarnúmer CERT-IS.