Leiðbeiningar um netöryggisatvik
Netöryggisatvik geta verið af ýmsum toga og mikilvægt er að bregðast rétt við þeim. Hér má finna leiðbeiningar fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir um hvernig bregðast má við netöryggisatvikum og hvort gagnlegt sé að tilkynna þau. Einnig er að finna lista yfir fyrirtæki sem veita sérhæfða aðstoð við meðhöndlun slíkra atvika.
EINSTAKLINGAR
Hér má finna upplýsingar um hvernig bregðast má við mismunandi netöryggisatvikum, hvernig hægt er að tilkynna þau og hvaða úrræði eru í boði.
Fjárkúgunartilraun
Ef einhver hótar þér eða beitir öðrum þrýstingi í þeim tilgangi að hafa af þér fjármuni, til dæmis í gegnum tölvupóst, smáskilaboð eða samfélagsmiðla, getur verið um tilraun til fjárkúgunar að ræða.
Hvað á ég að gera?
Ef einhver reynir að beita þig þrýstingi eða hótunum til að fá þig til að gera eitthvað gegn vilja þínum skaltu ekki verða við kröfum viðkomandi. Vistaðu samskiptin og önnur gögn sem geta nýst til að bregðast við málinu og leitaðu aðstoðar hjá viðeigandi aðilum.
- Ekki svara skilaboðunum eða greiða lausnargjald.
- Breytið lykilorðum að viðeigandi aðgöngum ef tilefni er til.
- Tilkynnið atvikið til lögreglu.
Tilkynna
Ekki er þörf á að senda tilkynningar af þessu tagi til CERT-IS. Allar fjárkúganir skal tilkynna til lögreglu.
Fjársvik
Ef fjármunir tapast í gegnum netsvik þarf að tilkynna atvikið til lögreglu og hafa samband við viðskiptabanka eða kortafyrirtæki þegar það á við. Í einhverjum tilfellum er möguleiki á að endurheimta fjármuni og því er mikilvægt að haft sé samband við rétta aðila sem allra fyrst. Ef atvik uppgötvast utan hefðbundins opnunartíma skal athuga hvort hægt sé að hafa samband í neyðarnúmer viðskiptabankans eða kortafyrirtækis.
Hvað á ég að gera?
Hafa samband við kortafyrirtæki, ef kort voru misnotuð og viðskiptabanka. Notið neyðarnúmer ef þörf er á.
Arion banki: 444-7000 – [email protected]
Indó: – 588-4636
Íslandsbanki: – 440-4000
Landsbankinn: – 410-4000
Kvika (Aur, Netgíró og Auður): – 519-8070
Tilkynna atvik til lögreglu. Öll atvik af kortamisnotkun ætti að tilkynna til lögreglu, óháð upphæð eða möguleika á endurheimt, þar sem þær upplýsingar geta hjálpað lögreglu við að finna mynstur í hegðun svikara.
Þú getur tilkynnt hér með því að smella hér á Tilkynningagátt Netbrota – Fjársvik eða mætt á næstu lögreglustöð.
Tilkynna atvikið til CERT-IS.
Tilkynna
CERT-IS tekur við tilkynningum og vinnur að niðurtöku á svikasíðum til að koma í veg fyrir að fleiri verði fyrir tjóni.
Hægt er að senda ábendingar um svik sem þessi á [email protected] eða tilkynna beint í gegnum tilkynningagáttina.
Mikilvægt er að áframsenda upprunalega svikapóstinn eða láta skjáskot af skilaboðunum fylgja með sem og hlekki/vefslóð á vefveiðar- eða svikasíðu.
Samfélagsmiðlar
Ef grunur vaknar um að brotist hafi verið inn á reikninginn þinn eða reikning einhvers sem þú þekkir má finna leiðbeiningar um næstu skref hér að neðan.
Hvað á ég að gera?
Hér fyrir neðan er listi yfir helstu samfélagsmiðla og endurheimtarferla þeirra.
Facebook – What to do if your account has been hacked
YouTube – Recover a hacked YouTube channel
WhatsApp – How to recover a compromised account
Instagram – My Instagram was hacked
TikTok – My account has been hacked
LinkedIn – LinkedIn Help
Telegram – Telegram FAQ
Snapchat – My account is compromised
Reddit – Account status overview
Signal – Signal Support
Að því ferli loknu má tilkynna atvikið til okkar. Til að draga úr líkunum á því að atvik sem þessi endurtaki sig mælumst við til þess að allir reikningar séu yfirfarnir þar sem oft eru þeir samtengdir. Gætið þess sérstaklega að öllum virkum lotum sé lokað. Einnig mælum við með því að öryggi sé hert og fjölþátta auðkenning sé virkjuð þar sem það er hægt.
Tilkynna
Hægt er að senda ábendingar um atvik sem þessi til CERT-IS í gegnum tilkynningargátt en einnig er hægt að áframsenda svikapósta og skjáskot af svikaskilaboðum á [email protected].
Spilliforrit, spillikóði og tölvuvírusar
Ef grunur leikur á að tæki sé sýkt eða óöruggt. Slík ógn getur meðal annars átt sér stað eftir að smellt hefur verið á grunsamlegan hlekk, skrá hlaðið niður eða af öðrum ástæðum.
Hvað á ég að gera?
- Aftengdu tækið frá internetinu, slökktu á Wi-Fi eða taktu netsnúru úr sambandi.
- Ekki slá inn viðkvæmar upplýsingar, sérstaklega lykilorð, bankaupplýsingar og greiðslukortaupplýsingar.
- Ef þetta er vinnu- eða skólatölva skaltu hafa samband við upplýsingatæknideild áður en lengra er haldið.
- Skannaðu tækið með uppfærðum vírusvarnar- eða spilliforritabúnaði.
- Fjarlægðu eða einangraðu greind spilliforrit samkvæmt leiðbeiningum varnarbúnaðs.
- Skiptu um mikilvæg lykilorð úr öruggu tæki ef grunur er um að þeim hafi verið stolið. Tölvupóst og öðrum mikilvægum aðgöngum.
- Kveiktu á fjölþátta auðkenningu (MFA) á mikilvægum aðgöngum þar sem það er í boði.
- Uppfærðu stýrikerfið og forrit.
- Athugaðu reikningana þína fyrir óvenjulegum innskráningum, skilaboðum, kaupum eða annarri grunsamlegri virkni.
- Settu tölvuna upp að nýju ef ekki er hægt að fjarlægja vírusinn með fullnægjandi hætti.
- Leitaðu aðstoðar sérfræðings ef þú ert óviss, frekar en að halda áfram að nota hugsanlega sýkta tölvu.
Tilkynna
Atvikið má tilkynna til CERT-IS í gegnum [email protected] eða tilkynningargátt. Lýsa skal aðdraganda smitsins og láta viðeigandi samskipti, hlekki og skrár fylgja með.
Vefveiðar
Ef um er að ræða vefveiðar sem berast í tölvupósti, með smáskilaboðum eða í gegnum svikasímtöl skal tilkynna tilraun til svika til CERT-IS og lögreglu. Sama á við ef grunur leikur á misnotkun rafrænna skilríkja í tengslum við vefveiðar.
Hvað á ég að gera?
- Hafi viðkomandi ekki gefið upp upplýsingar, smellt á hlekk og/eða viðhengi, er ekki þörf á að aðhafast frekar, en tilkynna má atvikið til CERT-IS.
- Hafi fjármála upplýsingum verið deilt ber að fylgja leiðbeiningum um “Fjársvik”.
- Hafi verið smellt á hlekki eða skrám niðurhalið skal fylgja leiðbeiningum um “Spilliforrit, spillikóði eða tölvuvírusar”.
- Hafi verið veittur aðgangur með auðkenni þarf að fara inn á mínar síður hjá auðkenni og enda virkar lotur.
Tilkynna
CERT-IS tekur við tilkynningum og vinnur að niðurtöku á svikasíðum til að koma í veg fyrir að fleiri verði fyrir tjóni.
Hægt er að senda ábendingar um svik sem þessi á [email protected] eða í gegnum tilkynningargátt. Gætið þess að láta viðeigandi hlekki og skjáskot fylgja með.
FYRIRTÆKI OG STOFNANIR
Hér má finna upplýsingar um viðbrögð við mismunandi tegundum netöryggisatvika og hvernig hægt er að tilkynna þau.
Álagsárásir og dreifðar álagsárásir
Álagsárás (DoS) er netárás þar sem reynt er að gera vefsíðu eða netþjónustu óaðgengilega með því að senda á hana meira af netumferð og beiðnum. Markmiðið er að draga úr afköstum þjónustunnar eða gera hana tímabundið óaðgengilega fyrir almenna notendur. Jafnvel stutt álagsárás getur haft veruleg áhrif á rekstur fyrirtækis eða stofnunar og valdið truflunum á þjónustu. Dreifð álagsárás (DDoS) er tegund álagsárásar þar sem árásin kemur frá mörgum tækjum eða kerfum samtímis. Slíkar árásir eru yfirleitt öflugri og erfiðari í vörnum þar sem umferðin kemur frá mörgum ólíkum vélum og líkist meira eðlilegri netumferð.
Viðbragð
Hafið samband við hýsingaraðila, netþjónustuaðila eða þann aðila sem sér um rekstur og varnir þjónustunnar. Reynið að draga úr áhrifum árásarinnar með þeim vörnum sem eru til staðar, varðveitið logga og skráið tímasetningar, umfang og hvaða aðgerðir reyndust árangursríkar.
Í kjölfar árásar sem þessar er skynsamlegt að fara vel yfir aðra árásarfleti þar sem þessi aðferð er gjarnan notuð til að draga athygli frá annari árás sem er gerð í skjóli álagsárásar.
Sé þörf á aðstoð við meðhöndlun atviks, vísum við á fyrirtæki sem sérhæfa sig í atvikameðhöndlun. Sjá lista neðar á síðunni.
Tilkynna
Verði fyrirtæki eða stofnun fyrir álagsárás geta upplýsingar úr atvikinu verið mjög gagnlegar þar sem þær veita mikilvæga innsýn í aðferðir ógnaraðila og geta auk þess hjálpað við að greina mögulegar tengingar við önnur atvik. Tekið er við tilkynningum í gegnum netfangið [email protected] og tilkynningagáttina.
Eftirfarandi upplýsingar má senda með tilkynningunni, séu þær til staðar:
Hvenær hófst árásin og hvenær lauk henni?
Hvernig tókst að stöðva eða draga úr áhrifum árásarinnar?
Hvaða varnir eða aðgerðir reyndust árangursríkar og hvaða aðgerðir skiluðu ekki árangri?
Liggja fyrir vísbendingar eða hótanir áður en árásin hófst?
Viðburðaskrá yfir netumferð á meðan árásin stóð yfir (hrá gögn eru í lagi og geta verið á hvaða skráarsniði sem er).
Vísar (IOC), svo sem:
IP-tölur
AS-númer
User-Agent upplýsingar
Fyrirmælasvik
Fyrirmælasvik gagnvart fyrirtækjum geta falið í sér að blekkingaraðferðum sé beitt í því skyni að fá starfsmenn til þess að framkvæma greiðslur eða breyta reikningsupplýsingum þannig að fjármunir verði færðir inn á reikning ógnaraðilans. Slík svik geta meðal annars átt sér stað í gegnum tölvupóst, fölsuð fyrirmæli, milligönguárásir eða misnotkun á trausti milli viðskiptaaðila.
Viðbragð
Fyrirtækjum eða stofnunum sem hafa orðið fyrir fyrirmælasvikum er ráðlagt að fylgja eftirfarandi skrefum:
Látið innra öryggisteymi og aðra viðeigandi aðila vita.
Hafið samband við viðskiptabanka sem allra fyrst og óskið eftir að stöðva og rekja greiðsluna.
Tilkynnið atvikið til lögreglu.
Varðveitið öll samskipti, greiðsluupplýsingar, hausaupplýsingar tölvupósta og önnur gögn sem tengjast atvikinu.
Yfirfarið hvort átt hafi verið við tölvupóstreikninga, áframsendingarreglur eða aðgangsheimildir.
Sé þörf á aðstoð við meðhöndlun atviks vísum við á fyrirtæki sem sérhæfa sig í atvikameðhöndlun. Sjá lista neðar á síðunni.
Tilkynna
Tilkynna skal atvikið til CERT-IS. Tekið er við tilkynningum í gegnum netfangið [email protected] og tilkynningagáttina.
Eftirfarandi upplýsingar má senda með tilkynningunni, séu þær til staðar:
Afrit af upprunalegum tölvupóstum eða skilaboðum.
Hausaupplýsingar tölvupósta (e. email header).
Greiðsluupplýsingar, reikningsnúmer og tímasetningar.
Vefslóðir, lén eða IP-tölur sem tengjast atvikinu.
Upplýsingar um hvort aðgangur hafi verið misnotaður eða póstreglum breytt.
Gagnagíslatökuárásir
Gagnagíslatökuárás (e. ransomware attack) er netárás þar sem ógnaraðili kemst inn í upplýsingakerfi og dulkóðar skrár eða kerfi þannig að ekki er lengur hægt að nálgast þau. Í sumum tilvikum afrita árásaraðilar einnig gögn og hóta að birta þau opinberlega ef lausnargjald er ekki greitt.
Árásirnar hefjast yfirleitt með því að ógnaraðili fær aðgang að kerfi, meðal annars með vefveiðum eða með því að misnota veikleika.
Athugið að greiðsla á lausnargjaldi er ekki trygging fyrir fullri endurheimt á gögnum og kerfum, né fyrir því að gögnum hafi verið lekið eða kunni að vera birt seinnar. Að sama skapi mun greiðsla lausnargjalds ekki tryggja að kerfi séu ekki lengur sýkt og er viðkomandi fyrirtæki eða stofnun líklegra til að verða fyrir frekari árásum.
Viðbragð
Einangrið sýkt kerfi eins fljótt og auðið er til að hindra frekari útbreiðslu.
Látið innra öryggisteymi og viðkomandi aðila vita.
Varðveitið gögn sem geta nýst við greiningu, svo sem log skrár, lausnargjaldsmiða og spillivísa.
Endurheimtið kerfi úr öruggum og ótengdum afritum ef þau eru til staðar eftir að lokað hefur verið fyrir aðgang árásaraðila og varnir yfirfarnar.
Sé þörf á aðstoð við meðhöndlun atviks, vísum við á fyrirtæki sem sérhæfa sig í atvikameðhöndlun. Sjá lista neðar á síðunni.
Hafi orðið öryggisbrestur þarf að tilkynna atvikið til persónuverndar.
Tilkynna
Verði fyrirtæki eða stofnun fyrir gagnagíslatökuárás geta upplýsingar úr atvikinu verið mjög gagnlegar þar sem þær veita mikilvæga innsýn í aðferðir ógnaraðila og geta auk þess hjálpað við að greina mögulegar tengingar við önnur atvik. Tekið er við tilkynningum í gegnum netfangið [email protected] og tilkynningagáttina.
Eftirfarandi upplýsingar má senda með tilkynningunni, séu þær til staðar:
Hver var skráarending dulkóðuðu skráanna (e. file extension).
Upplýsingar um hvernig árásaraðili komst inn í kerfið:
Misnotkun veikleika
Stolnar aðgangsupplýsingar
Vefveiðipóstur
Log skrá fyrir netumferð og endapunkta, ásamt viðburðaskrár úr varnarkerfum. Skráin má vera hrá og á hvaða sniði (e. format) sem er.
Allar skrár sem fundust á vélinni og gætu tengst ógnaraðila.
Hvernig og hvenær uppgötvaðist atvikið.
Hvaða skrár voru dulkóðaðar.
Hvernig og hvenær var árásin stöðvuð. Hvaða aðferðir virkuðu, hvað virkaði ekki.
Vísar (IOC):
Nafn skráar, t.d. spilliforrits
Launargjaldsmiðinn (e. ransom note)
IP-tölur
Skráarending á dulkóðuðum skrám
Skráarnafn lausnargjaldsmiðans (e. ransom note)
Tætigildi (e. hash value) skráar (SHA256, SHA1, MD5)
Innbrot eða innbrotstilraun
Innbrot eða innbrotstilraun á sér stað þegar óviðkomandi aðili reynir að brjótast inn í kerfi, þjónustu eða notendareikning fyrirtækis eða stofnunar. Slíkt getur gerst með misnotkun veikleika, stolnum aðgangsupplýsingum, vefveiðum eða öðrum aðferðum.
Viðbragð
Látið innra öryggisteymi og aðra viðeigandi aðila vita.
Einangrið eða takmarkið aðgang að kerfum sem kunna að hafa orðið fyrir áhrifum.
Varðveitið viðburðaskrá, log skrár og aðrar upplýsingar sem geta nýst við greiningu.
Endurstillið lykilorð og endið virkar lotur (e. active sessions) þar sem grunur er um misnotkun aðgangs:
Yfirfarið hvort átt hafi verið við stillingar, notendareikninga, póstreglur eða aðgangsheimildir.
Sé þörf á frekari aðstoð við meðhöndlun atviks vísum við á fyrirtæki sem sérhæfa sig í atvikameðhöndlun. Sjá lista neðar á síðunni.
Tilkynna
Verði fyrirtæki eða stofnun fyrir innbroti eða innbrotstilraunum geta upplýsingar úr atvikinu verið mjög gagnlegar þar sem þær veita mikilvæga innsýn í aðferðir ógnaraðila og geta auk þess hjálpað við að greina mögulegar tengingar við önnur atvik. Tekið er við tilkynningum í gegnum netfangið [email protected] og tilkynningagáttina.
Eftirfarandi upplýsingar má senda með tilkynningunni, séu þær til staðar:
Er vitað hvernig árásaraðili komst inn í kerfið?
Veikleiki misnotaður
Komist yfir innskráningarupplýsingar
Vefveiðipóstur
Log skrá yfir netumferð og endapunkta ásamt logskrá úr vírusvörn ef hún er til staðar. Skráin má vera hrá og á hvaða sniði (e. format) sem er.
Allar skrár og spillivísar sem finnast á vélinni eða kerfinu sem gætu tengst ógnaraðila
Hvernig var árásin stöðvuð?
Hvaða aðferðir virkuðu, hvað virkaði ekki?
Vísar (IOC)
IP-tölur
Hash
Spilliforrit, spillikóði og tölvuvírusar
Ef grunur leikur á að tæki sé sýkt eða óöruggt. Slík ógn getur meðal annars átt sér stað eftir að smellt hefur verið á grunsamlegan hlekk, skrá hlaðið niður eða af öðrum ástæðum.
Viðbragð
Einangrið tækið eða kerfið frá neti ef grunur er um virkt smit.
Látið innri öryggisteymi eða þjónustuaðila skoða tækið áður en það er tekið aftur í notkun.
Varðveitið logga og aðrar upplýsingar sem geta nýst við greiningu.
Endurstillið lykilorð ef grunur er um að innskráningarupplýsingar hafi lekið.
Sé þörf á aðstoð við meðhöndlun atviks vísum við á fyrirtæki sem sérhæfa sig í atvikameðhöndlun. Sjá lista neðar á síðunni.
Tilkynna
Atvikið má tilkynna til CERT-IS í gegnum [email protected] eða tilkynningargátt. Lýsa skal aðdraganda smitsins og láta viðeigandi samskipti, hlekki, skrár, logga og spillivísa fylgja með ef þau eru til staðar.
Vefveiðar
Ef um er að ræða vefveiðar sem berast í tölvupósti, með smáskilaboðum eða í gegnum svikasímtöl skal tilkynna tilraun til svika til CERT-IS og lögreglu. Sama á við ef grunur leikur á misnotkun rafrænna skilríkja í tengslum við vefveiðar.
Viðbragð
Látið innra öryggisteymi og viðeigandi aðila vita.
Hafi viðkomandi ekki gefið upp upplýsingar, smellt á hlekk og eða viðhengi, er ekki þörf á að aðhafast frekar, en tilkynna má atvikið til CERT-IS.
Hafi fjármálaupplýsingum verið deilt ber að fylgja leiðbeiningum um “Fjársvik”.
Hafi verið smellt á hlekki eða skrám niðurhalið skal fylgja leiðbeiningum um “Spilliforrit, spillikóði eða tölvuvírusar”.
Hafi verið veittur aðgangur með auðkenni þarf að fara inn á mínar síður hjá Auðkenni og enda virkar lotur.
Tilkynna
CERT-IS tekur við tilkynningum og vinnur að niðurtöku á svikasíðum til að koma í veg fyrir að fleiri verði fyrir tjóni.
Hægt er að senda ábendingar um svik sem þessi á [email protected] eða tilkynna beint í gegnum tilkynningagáttina.
Gætið þess að láta viðeigandi hlekki og skjáskot fylgja með.
Vefveiðar í nafni fyrirtækis
Þegar nafn, vörumerki, lén eða þjónusta fyrirtækis eða stofnunar er notuð í heimildarleysi til að villa um fyrir fólki, til dæmis í vefveiðum, á fölsuðum vefsíðum, í tölvupóstum, smáskilaboðum eða á samfélagsmiðlum.
Viðbragð
Ef fyrirtæki eða stofnun verður vör við slíka misnotkun á nafni sínu, vörumerki, léni eða öðrum auðkennum er ráðlagt að fylgja eftirfarandi skrefum:
Látið innra öryggisteymi og viðkomandi aðila vita.
Varðveitið afrit af upprunalegum skilaboðum, skjáskot og vefslóðir sem tengjast atvikinu.
Ef fölsuð vefsíða er virk skal óska eftir lokun eða niðurtöku hjá hýsingaraðila, lénaskráningaraðila eða þjónustuaðila eftir því sem við á.
Upplýsið viðskiptavini eða notendur ef hætta er á að þeir falli fyrir svikunum.
Tilkynnið atvikið til CERT-IS svo hægt sé að styðja við blokkun eða niðurtöku og miðla viðvörunum ef þörf er á.
Tilkynna
CERT-IS tekur við tilkynningum og vinnur að niðurtöku á svikasíðum til að koma í veg fyrir að fleiri verði fyrir tjóni.
Hægt er að senda ábendingar um svik sem þessi á [email protected] eða tilkynna beint í gegnum tilkynningagáttina.
Mikilvægt er að áframsenda upprunalega svikapóstinn eða skjáskot af skilaboðunum fylgja með sem og hlekki/vefslóð á vefveiðar- eða svikasíðu. Einnig mega aðrar upplýsingar sem geta hjálpað til við greiningu og niðurtöku fylgja með.
FYRIRTÆKI Í ATVIKAMEÐHÖNDLUN
Hér fyrir neðan er listi yfir fyrirtæki sem veita sérhæfða aðstoð við meðhöndlun netöryggisatvika.
Ambaga
Vefsíða: Ambaga.is
Netfang: [email protected] eða [email protected]
Símanúmer: +354 768 0112
Ambaga býður upp á viðbragðsþjónustu og ráðgjöf við öryggisatvikum allan sólarhringinn, alla daga vikunnar. Teymið okkar samanstendur af sérfræðingum með víðtæka reynslu á sviði tölvurannsókna og atvikargreiningar bæði hérlendis sem erlendis.
Viðbragðsþjónusta Ambaga nær yfir eftirfarandi:
- Atvikastjórnun: Við leiðum þig í gegnum alla þætti öryggisatviks æskilegum stöðlum og starfsháttum(industry standard and best practices), frá fyrstu greiningu til lausnar mála.
- Atvika- og rótargreiningu: Ítarleg greining á orsökum atvik ásamt mögulegum fyrirbyggjandi aðgerðum og umbótatillögum í framhaldinu.
- Samskipti: Við aðstoðum við samskipti og samhæfingu aðgerða til að koma rekstri aftur í samt lag á eins skilvirkan og öruggan hátt og mögulegt er.
Artic Wolf
Vefsíða: Artic Wolf – Incident Response
Netfang: [email protected]
Símanúmer: +45 80 82 08 52 eða +1 888 272 8429
Arctic Wolf bíður öllum fyrirtækjum uppá online atviksmeðhöndlun allan sólarhringinn með innan við 1 klukkutíma viðbragðstíma (SLA).
Arctic Wolf bíður einnig uppá alhliða öryggis vöktun allan sólarhringinn fyrir viðskiptavini og ráðgjöf varðandi öryggisáhættu fyrirtækja sem herðir, greinir og bregðast við atvikum.
Arctic Wolf atviksmeðhöndlun er eitt fárra fyrirtækja sem bíður uppá að endurheimtun gagna á sama tíma og greining atvika á sér stað sem gefur hraðari endurheimtun rekstrar.
Viðskiptavinum biðst einnig áætlanagerð um viðbragð (JumpStart Retainer) sem undirbýr atviksmeðhöndlun sem eikur enn hraðari viðbragð.
Deloitte
Deloitte aðstoðar fyrirtæki sem lenda í netöryggisatvikum allan sólarhringinn. Deloitte aðstoðar við fyrsta viðbragð netöryggisatvika, ásamt því að framkvæma orsakagreiningu atvika og uppbyggingu netvarna til að lágmarka líkurnar á að lenda í netöryggisatvikum.
Einnig býður Deloitte upp á 24/7 rauntímavöktun þar sem hægt er að bregðast við um leið og atvik byrjar ásamt því að Deloitte framkvæmir bæði stefnumótandi vinnu og tæknilega úttektir á tölvukerfum viðskiptavina.
OK
Vefsíða: Ok.is
Netfang: [email protected] eða [email protected]
Símanúmer: +354 570 1000
OK sér um ráðgjöf og aðstoð við að greina rekstrar/öryggis atvik. Við leggjum áherslu á krísustjórnun og að draga viðeigandi aðila að borði eftir eðli atvika. Byggja upp tímalínu og aðstoða við að bregðast rétt við.
Ratatoskur
Vefsíða: Ratatoskur.is
Netfang: [email protected]
Símanúmer: +354 862-0725
Ratatoskur fylgist daglega með íslenskum vefjum og leitar að merkjum um innbrot, til dæmis földu ruslefni, falsverslunum sem aðeins leitarvélar sjá, tilvísunum á svikasíður og spillikóða sem ræðst á gesti. Eigendum er tilkynnt án endurgjalds og á ratatoskur.is getur hver sem er athugað sinn eigin vef. Ratatoskur aðstoðar einnig við hreinsun sýktra vefja og öryggisúttektir: finnur bakdyr og breyttar skrár, rekur innbrotsleiðina, lokar henni og herðir vefinn. Hafið samband til að meta hvert mál.
SecureIT
Vefsíða: Secureit.is
Netfang: [email protected]
Símanúmer: +354 888 4268 eða í atvikum +354 888 1247
SecureIT veitir viðbraðgsþjónustu vegna netöryggisatvika. Að auki er boðið upp á ýmsa öryggisráðgjöf og prófanir, þ.a.m. varðandi mat á stöðu aðila gagnvart viðbragði við öryggisativkum (Incident Readiness) og við gerð viðbragðsferla.
Önnur ráðgjafaþjónusta fyrirtækisins innifelur ráðgjöf til að styrkja öryggisstöðu fyrirtækja, gerð ferla og vottanir samkvæmt ýmsum alþjóðlegum stöðlum s.s. ISO, PCI og HITRUST. Einnig býður SecureIT upp á tæknilegar prófanir s.s. Innbrotsprófanir og veikleikaskönn.
SecureIT býður aðstoð allan sólarhringinn fyrir fyrirtæki með þjónustusamning eða gegn gjaldi.
Skjöldur
Vefsíða: Skjöldur – Advania
Netfang: [email protected]
Símanúmer: +354 440-9000
Skjöldur, netöryggisþjónusta Advania, býður fyrirtækjum upp á 24/7/365 viðbragðsþjónustu vegna netöryggisatvika. Við bregðumst tafarlaust við atvikum og gerum nauðsynlegar ráðstafanir.
Viðskiptavinir Skjaldar eru í þjónustu þar sem við tryggjum vörn, vöktun og viðbragð allan sólahringinn, ásamt neyðarþjónustu og öryggisráðgjöf. Fagfólkið okkar framkvæmir greiningar og úttektir á umhverfum, þar sem niðurstöður nýtast beint sem úrbótaverkefni. Saman vinnum við að því markmiði að gera umhverfi viðskiptavina mun öruggari.
Syndis
Vefsíða: Syndis.is
Netfang: [email protected]
Símanúmer: +354 415 1337
Syndis er til taks allan sólarhringinn fyrir viðskiptavini Syndis með viðbragðsþjónustu enn fremur býður Syndis upp á 24/7 vöktun á kerfum og ef vart verður við óeðlilega hegðun þá er brugðist við í rauntíma.
Fyrirtæki með samning um viðbragðsþjónustu Syndis geta leitað beint til sérfræðinga Syndis allan sólarhringinn ef upp koma alvarleg öryggisfrávik eða þegar búið er að brjótast inn í kerfi viðkomandi. Sérfræðingar Syndis geta komið að allri verkstjórn og tekið stjórn á vettvangi, farið í að rekja atvik, veitt ráðgjöf varðandi samskipti út á við og aðstoðað við næstu skref.

TÓL OG ÞJÓNUSTUR
VAKI
Veikleika og netógna viðvörunarkerfi CERT-IS veitir fyrirtækjum og stofnunum á Íslandi tímanlegar upplýsingar um netógnir og veikleika sem geta haft áhrif á kerfi og stafrænar eignir þeirra.
Veikleikatilkynningar
CERT-IS sendir út tilkynningar um veikleika sem kunna að hafa áhrif á netöryggi. Hér má finna upplýsingar um nýuppgötvaða veikleika og mögulegar öryggisáhættur.
Alvarleikamat
Mikilvægt er að við innleiðingu mats á alvarleika í viðbúnaðaráætlanir séu viðmið um áhrif og umfang aðlöguð með tilliti til reksturs viðkomandi aðila.