Sjálfvirkni og gervigreind eru að breyta umfangi, hraða og framkvæmd netárása. Opinn hugbúnaður og kerfi sem nýta gervigreind til innbrotsprófana og skönnunar á veikleikum hafa verið misnotuð af árásaraðilum. Þessi þróun þýðir að aðferðir og tækni sem áður kröfðust sérhæfðra aðila er orðin aðgengilegri og auðveldari í notkun.
CERT-IS hvetur því íslensk fyrirtæki og stofnanir til að yfirfara aðgangsstýringar, kerfi opin út á internetið, skýjaþjónustur og tengingar við þriðju aðila og tryggja að vöktun og viðbragðsgeta sé í samræmi við þessa þróun.
Hver er áhættan fyrir íslensk fyrirtæki og stofnanir?
Sjálfvirk leit að veikleikum: Gervigreind getur skannað og kortlagt kerfi sem opin eru út á internetið með miklum hraða
Misnotkun aðgangsupplýsinga: Stolin aðgangsorð, API-lyklar o.fl. geta verið nýtt til að komast inn í kerfi
Árásir í gegnum birgja: Veik öryggisstaða hjá samstarfsaðila eða þjónustuveitanda getur opnað leið inn í stærri upplýsingakerfi
Gagnaþjófnaður: Eftir innbrot getur viðkvæmum upplýsingum verið safnað og stolið úr kerfum
Hraðari árásarferli: Styttri tími gefst til að greina árás og bregðast við áður en verulegt tjón getur orðið
Ráðlagðar aðgerðir
CERT-IS hvetur íslensk fyrirtæki og stofnanir til að fara yfir eftirfarandi atriði án tafar
Aðgangsstýringar og auðkenning
- Virkja fjölþátta auðkenningu (MFA), sérstaklega fyrir stjórnenda- og fjaraðganga
- Yfirfara aðgangsheimildir notenda, þjónustuaðganga og forrita
- Fjarlægja óþarfar eða úreltar aðgangsheimildir
- Skipta út aðgangsorðum og API-lyklum sem kunna að hafa komist í hendur óviðkomandi
Kerfi sem eru aðgengileg frá internetinu
- Kortleggja kerfi sem opin eru út á internetið, vefþjónustur, API-viðmót og stjórnunargáttir
- Takmarka aðgang að stjórnunarkerfum við skilgreind og traust net.
- Tryggja að kerfi og hugbúnaður séu uppfærð með nýjustu öryggisuppfærslum
- Yfirfara eldri kerfi og þjónustur sem kunna að hafa fallið utan reglubundins öryggiseftirlits
Skýjaþjónustur og birgjar
- Yfirfara aðgangsheimildir í skýjaumhverfum, svo sem Microsoft Azure og AWS
- Fylgjast með óvenjulegri virkni í þjónustuaðgöngum og forritum
- Yfirfara tengingar við birgja og samstarfsaðila
- Tryggja að aðgangur þriðju aðila sé takmarkaður við það sem nauðsynlegt er
Vöktun og viðbragðsgeta
- Fylgjast með óvenjulegum innskráningum og aðgangi frá óþekktum IP-tölum
- Fylgjast með óvenjulegri aukningu í API-beiðnum eða gagnaflutningi
- Tryggja að atburðaskrár (logs) séu varðveittar og tiltækar til rannsóknar
- Yfirfara viðbragðsáætlanir vegna netárása og ganga úr skugga um að ábyrgð og boðleiðir séu skýrar
Ef grunur vaknar um að upplýsingakerfi hafi verið nýtt í óheimilum tilgangi er mikilvægt að virkja viðeigandi viðbragðsáætlun, tryggja varðveislu sönnunargagna og tilkynna atvik til [email protected] eða í gegnum hnapp á cert.is.
Frekari upplýsingar um þessa nýju ógn má finna hér að neðan.