Aðfaranótt 2. nóvember var ráðist á kælikerfi í tugum verslana í fjölda Evrópulanda: Belgíu, Lúxemborg, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Írlandi, Hollandi og Eistlandi. Óprúttnir aðilar komust inn í stjórnkerfi kæla og frysta í hundruðum verslana og hækkuðu hitann í allt að 50°C.
CERT-IS hvetur rekstraraðila kælibúnaðar til að kanna strax hvort stjórnbúnaður þeirra sé aðgengilegur af internetinu og loka fyrir það ef svo er. Dæmi eru um að breytt eða slökkt hafi verið á viðvörunum (e. alerts) sem kælibúnaður myndi annars gefa frá sér ef hitastig breytist.
Í ágúst á þessu ári fóru kælar á bandarískum herstöðvum í þíðingarham (e. defrost mode) og matvæli skemmdust. Bandaríska varnarmálaráðuneytið rannsakar nú atvikin sem mögulega netárás. Um miðjan október var gerð sambærileg árás á kælibúnað í hundruðum matvöruverslana í Frakklandi, þar sem hiti fór í allt að 50°C.
CERT-IS fylgist náið með þróun mála og er í samskiptum við systurstofnanir sínar á Norðurlöndum og annars staðar í Evrópu.
Ábendingar til rekstraraðila kælibúnaðar
Rekstraraðilar kælibúnaðar og aðrir sem hafa umsjón með slíkum búnaði ættu að huga að eftirfarandi:
Kortleggja, í samráði við þjónustuaðila, hvaða búnaður er tengdur internetinu, hvernig sú tenging er varin og hvort hún sé yfirhöfuð nauðsynleg.
Sé stjórnbúnaður opinn á internetinu þarf að loka fyrir það strax. Fjaraðgangur á aðeins að vera mögulegur í gegnum trausta tengingu, svo sem VPN með fjölþátta auðkenningu.
Tryggja þarf að búnaðurinn sé uppfærður, að sjálfgefnum lykilorðum hafi verið breytt og að búnaði sem framleiðandi styður ekki lengur sé skipt út.
Hafa kælibúnað á aðskildu netsvæði, aðgreindum frá öðrum tölvukerfum.
Prófa þarf reglulega að hitaviðvaranir virki og berist ábyrgðaraðila utan opnunartíma. Dæmi eru um að árásaraðilar hafi slökkt á viðvörunum eða breytt þeim.
Fylgjast með óvæntri affrystingu, breytingum á hitastillingum eða viðvörunum og innskráningum sem enginn kannast við.
Hafa verklag til að bregðast við atvikum. Vakni grunur um innbrot: aftengja búnaðinn frá netinu, stýra kælingu handvirkt og varðveita atvikaskrár.
Verði fyrirtæki vart við óeðilega hegðun í kælibúnaði er óskað eftir að það verði tilkynnt til CERT-IS, í síma 415-1350 eða í gegnum netfangið [email protected].