Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og CERT-IS hafa ákveðið að virkja viðbragðsáætlun almannavarna um verndun ómissandi upplýsingainnviða.
Ákvörðunin er tekin í ljósi aukinnar notkunar gervigreindar í netárásum á Íslandi og nágrannalöndum sem felur í sér aukna ógn gagnvart íslenskum innviðum og upplýsingakerfum.
Áætlunin er virkjuð á óvissustigi almannavarna. Í því felst aukin vöktun og samráð milli Almannavarna, CERT-IS og rekstraraðila ómissandi upplýsingainnviða.
Íslensk fyrirtæki og stofnanir eru um leið hvattar til að yfirfara eigin varnir og hættumat, yfirfara aðgangsstýringar, kerfi opin út á internetið, skýjaþjónustur, og tengingar við þriðju aðila. Auk þess er mikilvægt að tryggja að vöktun og viðbragðsgeta sé í samræmi við þessa þróun.
Mikilvægt er að aðilar tilkynni grun um atvik í eigin kerfum til CERT-IS, með pósti á [email protected] eða í gegnum tilkynningahnapp á cert.is.
Nánari upplýsingar um netógnir vegna gervigreindar má finna í frétt sem CERT-IS birti fyrr í dag.