Leiðir til að auka öryggi tækja og aðganga
Flest okkar nota fjölda reikninga og tækja sem eru varin með lykilorðum. Þótt það geti verið þægilegt að nota sama eða svipað lykilorð á fleiri en einum stað eykur það áhættu og getur sett tæki og gögn í hættu. Með nokkrum einföldum venjum má auðveldlega styrkja öryggi lykilorða, reikninga og tækja.
Veldu gott lykilorð
Einfaldar reglur varðandi lykilorð eru:
Haltu lykilorðum leyndum og ekki deila með öðrum
Blandaðu saman hástöfum, lágstöfum, táknum og tölustöfum
Notaðu löng lykilorð, lengra en 14 stafir bætir öryggi lykilorðs verulega
Ekki samnýta sama lykilorð á fleiri en einum stað
Notaðu lykilorðabanka (e. password manager)
Hugleiddu að nota lykilsetningu í stað lykilorðs
Skoðaðu lykilorðabanka
Lykilorðabanka (e. password manager) má bæði nota til að búa til lykilorð og geyma þau. Þannig er hægt að hafa löng, flókin og einstök lykilorð á hvern aðgang fyrir sig.
Settu upp margþátta auðkenningu
Til viðbótar við sterk lykilorð þá er orðin góð venja að nota margþátta auðkenningu (e. multifactor authentication), oft vísað til sem MFA eða 2FA. Notendur setja þá upp smáforrit á símanum sínum sem sýnir tímabundinn kóða til viðbótar við lykilorð við innskráningu. Þetta bætir öryggi við innskráningu verulega og getur komið í veg fyrir mörg innbrot. Slík smáforrit eru t.d. Microsoft Authenticator og Google Authenticator.
Uppfærðu tækið þitt
Úreltur hugbúnaður auðveldar svindlurum að brjótast inn í tækið þitt. Ef þú sérð tilkynningu um hugnúnaðaruppfærslu skaltu ekki hika við að uppfæra tækið þitt. Gott er að kveika á sjálfvirkum uppfærslum í stillingum tæksisins.
Gott er að hafa eftirfarandi í huga:
- Ekki smella á hlekki í óvæntum tölvupósti. Slíkir tenglar geta vísað á falskar vefsíður sem líta út fyrir að vera áreiðanlegar.
- Ekki slá inn persónulegar eða fjárhagslegar upplýsingar nema þú sért fullkomlega viss um öryggi síðunnar. Ef minnsti vafi leikur á er gott að fara beint á opinbera heimasíðu viðkomandi þjónustuaðila, frekar en að fylgja hlekk í tölvupósti.
- Ekki flýta þér að bregðast við. Ef þú færð óvænt tölvupóst, skilaboð í síma eða símtal sem biður um persónulegar upplýsingar eða krefst skjótra viðbragða, taktu þér augnablik til að hugsa málið. Það er alltaf í lagi að athuga málið betur eða hafna því ef eitthvað vekur upp grunnsemdir. Svikarar beita oft tímapressu í skilaboðum sínum til að fá fólk að bregast við án þess að hugsa sig lengi um.