Veikleikar í PHP, eMudhra, Cisco, GitLab, Fortinet, BlockStrap, BeyondTrust og Drupal

CERT-IS mælir með að uppfært sé eins fljótt og auðið er í útgáfu þar sem veikleikarnir hafa verið lagfærðir.

PHP

CVE-2026-109618 | CVSSv3 9.8

CVE-2026-109619 | CVSSv3 9.8

CERT-IS varaði við tveimur alvarlegum veikleikum þann 21. október í PHP sem geta leyft fjarkeyrslu kóða á vefþjónum án auðkenningar. Staða hefur verið uppfærð.

eMudhra

CVE-2026-111943 | CVSSv3 6.8

Gefið hefur verið út að öryggi eMudhra skilríkja hafi verið ógnað. Vegna mistaka við útgáfa milliskilríkja hjá eMudhra reyndist vera mjög auðvelt að komast að einkalyklum þeirra og þar með hægt að gefa út fölsuð skilríki. Útgefendur stýrikerfa og vafra hafa nú þegar gripið til viðeigandi aðgerða og lokað á rótarskilríki eMudhra og eru allir sem hafa uppfært stýrikerfi og vafra óhultir. Þó er rekstraraðilum bent á fylgja eftir uppfærslum á sínum kerfum og þá sérstaklega með tilliti til jaðartækja (prentara, posa, fundarbúnaðar, myndavéla og þessháttar) eða fylgjast með leiðbeiningum frá útgefendum eða birgjum.

Cisco

CVE-2026-76466 | CVSSv3 9.8

CVE-2026-76473 | CVSSv3 9.8

CVE-2026-76474 | CVSSv3 9.8

CVE-2026-76475 | CVSSv3 9.3

CVE-2026-20043 | CVSSv3 9.0

Cisco Systems hafa tilkynnt um nýuppgötvaða veikleika á vörum þeirra. Nýting á veikleikanum getur meðal annars leitt til álagsárása (e.DOS) og keyrslu kóða (e. code execution).

GitLab

CVE-2026-110264 | CVSS 10.0

GitLab gaf út uppfærslu vegna veikleika sem leyfði ógnaraðili að keyra kóða á „self-managed“ þjónum án þess að auðkenna sig.

Fortinet

Fortinet hafa tilkynnt öryggisuppfærslu sem kemur út 22. október. Nær hún til FortiOS, FortiManager, FortiMail, FortiAuthenticator og FortiAnalyzer.

Blockstrap

CVE-2026-103849 | CVSSv3 10.0

BlockStrap er alvarlegur veikleiki á Adobe Commerce og Magento. Nýting á veikleikanum gerir óauðkenndum ógnaraðilum kleift að fjarkeyra kóða (e. remote code execution).

BeyondTrust

CVE-2026-102764 | CVSSv3 9.8

Þann 15. október gerði BeyondTrust vart við veikleika á „BeyondTrust Remote Support“ lausnum. Nýting á veikleikanum gerir ógnaraðila kleift að hlaða upp óleyfðum skrám (e. arbitrary file upload).

Drupal

CVE-2026-108097 | CVSSv3 9.8

Drupal hefur gefið út upplýsingar um alvarlegan veikleika. Nýting á veikleikanum getur leitt til fjarkeyrslu kóða (e. remote code execution).

Scroll to Top