Veikleikar í Palo Alto misnotaðir til innbrota – þar á meðal með PHP2Shell

Netöryggisstofnun Bandaríkjanna (CISA) bætti nýlega veikleikunum sem gjarnan hafa verið kallaðir PHP2Shell á lista yfir veikleika sem nýttir eru til innbrota, KEV listi CISA. Í dag hafa svo birst fréttir sem halda því fram að veikleikarnir hafi verið misnotaðir ásamt öðrum veikleika til innbrota á netbúnað frá Palo Alto Networks.

CERT-IS mælir með að uppfært sé eins fljótt og auðið er í útgáfu þar sem veikleikarnir hafa verið lagfærðir.

Palo Alto PAN-OS

Palo Alto Networks hefur gefið út viðvörun vegna veikleika í eldveggjum sínum, PAN-OS, sem gerir árásaraðilum kleift að brjótast inn búnaðinn í gegnum stjórnborð hans. Haldið er fram að veikleikinn hafi þegar verið nýttur í árásum, en aðeins er hægt að misnota hann af þeim sem komast inn stjórnborð búnaðarins.

Fyrirtæki og stofnanir sem keyra Palo Alto búnað eru hvött til að takmarka eins og hægt er aðgengi að stjórnborðinu og uppfæra um leið og tækifæri gefst til. Sé það ekki hægt að fylgja leiðbeiningum birgja sem finna má í tilkynningunni.

Heimildir:

Scroll to Top