Veikleikar í Drupal, Cisco, Ubiquity og LiteSpeed cPanel viðbót

Tilkynnt hefur verið um veikleika í Drupal, Cisco, Ubiquity og LiteSpeed. CERT-IS mælir með að uppfært sé eins fljótt og auðið er í útgáfu þar sem veikleikarnir hafa verið lagfærðir.

Drupal

Veikleikinn CVE-2026-9082 í Drupal Core með CVSSv3 veikleika stig upp á 9.8 er SQL innspýtingar (e. injection) veikleiki sem gerir ógnaraðila kleift að komast yfir óæskilegar upplýsingar og í versta falli ná sér í aukin réttindi (e. privilege escalation) eða fjarkeyra kóða (e. remote code execution).

Cisco

Veikleikinn CVE-2026-20223 í Cisco Secure með CVSSv3 veikleika stig upp á 10.0 gerir óauðkenndum ógnaraðila kleift að komast yfir auðlindir kerfisins með réttindi vefstjóra (e. site admin).

Ubiquiti

Ubiquiti hafa gefið út uppfærslur fyrir þrjá alvarlega veikleika.

Veikleikinn CVE-2026-34908 með CVSSv3 veikleika stig upp á 10.0 gerir ógnaraðila kleift að framkvæma óheimilar breytingar (e. unauthorized changes) á kerfinu.

Veikleikinn CVE-2026-34909 með CVSSv3 veikleika stig upp á 10.0 gerir ógnaraðila kleift að komast yfir aðgang á kerfinu.

Veikleikinn CVE-2026-34910 með CVSSv3 veikleika stig upp á 10.0 gerir ógnaraðila kleift að framkvæma innspýtingu á fyrirspurn (e. command injection).

LiteSpeed cPanel plugin

Veikleikinn CVE-2026-48172 með CVSSv3 veikleika stig upp á 10.0 gerir ógnaraðila kleift að komast yfir aukin réttindi (e. privilege escalation) og mögulega réttindi rótarnotanda.

Scroll to Top