Tilkynnt hefur verið um alvarlega veikleika í Fortinet FortiOS og FortiProxy [1] og
í Jenkins Server [2][3].
FortiOS og FortiProxy [1]
Tilkynnt hefur verið um alvarlegan veikleika í Fortinet FortiOS og FortiProxy [1] sem
gefur óauðkenndum aðila færi á að keyra kóða á búnaðinum (e. execute arbitrary code).
Veikleikinn hefur fengið númerið CVE-2023-25610 og er með CVSS skorið 9.3. Ekki er
vitað til þess að veikleikinn sé misnotaður sem stendur.
Veikleikinn er til staðar í útgáfum:
- FortiOS útgáfa 7.2.0 til og með 7.2.3
- FortiOS útgáfa 7.0.0 til og með 7.0.9
- FortiOS útgáfa 6.4.0 til og með 6.4.11
- FortiOS útgáfa 6.2.0 til og með 6.2.12
- FortiOS 6.0 allar útgáfur
- FortiProxy útgáfa 7.2.0 til og með 7.2.2
- FortiProxy útgáfa 7.0.0 til og með 7.0.8
- FortiProxy útgáfa 2.0.0 til og með 2.0.11
- FortiProxy 1.2 allar útgáfur
- FortiProxy 1.1 allar útgáfur
Veikleikinn hefur verið lagfærður í útgáfum:
- FortiOS útgáfa 7.4.0 eða nýrri
- FortiOS útgáfa 7.2.4 eða nýrri
- FortiOS útgáfa 7.0.10 eða nýrri
- FortiOS útgáfa 6.4.12 eða nýrri
- FortiOS útgáfa 6.2.13 eða nýrri
- FortiProxy útgáfa 7.2.3 eða nýrri
- FortiProxy útgáfa 7.0.9 eða nýrri
- FortiProxy útgáfa 2.0.12 eða nýrri
- FortiOS-6K7K útgáfa 7.0.10 eða nýrri
- FortiOS-6K7K útgáfa 6.4.12 eða nýrri
- FortiOS-6K7K útgáfa 6.2.13 eða nýrri
Nánari upplýsingar er að finna í tilkynningu frá Fortinet [1], meðal annars um
mögulegar aðferðir til að komast fram hjá veikleikanum án þess að uppfæra
(e. workaround).
Jenkins Server [2][3]
Rannsakendur á vegum Aqua Nautilus hafa uppgötvað veikleika sem þeir hafa gefið nafnið
CorePlague í hugbúnaðinum Jenkins Server og Jenkins Update Center [2]. Veikleikarnir
gefa óauðkenndum aðila færi á að keyra kóða á búnaðinum (e. execute arbitrary code) sem
getur mögulega leitt til þess að ógnaraðili nái fullri stjórn á búnaðinum (e. total
compromise).
Samkvæmt tilkynningu frá Jenkins [3] þá er samtals um að ræða 7 veikleika og þeir
alvarlegustu, sem ganga undir nafninu CorePlague, eru CVE-2023-27898 með CVSS skor 8.8
og CVE-2023-27905 með CVSS skor 7.0. CVSS útreikningar eru fengnir frá Jenkins [3] en
veikleikarnir hafa ekki verið birtir formlega.
Veikleikarnir eru til staðar í útgáfum:
- Jenkins útgáfa 2.393 og eldri (Jenkins weekly útgáfa)
- Jenkins LTS útgáfa 2.375.3 og eldri
- Jenkins update-center2 útgáfa 3.14 og eldri
Veikleikarnir hafa verið lagfærður í útgáfum:
- Jenkins útgáfa 2.394 (Jenkins weekly útgáfa)
- Jenkins LTS útgáfa 2.375.4 eða 2.387.1
- Jenkins update-center2 útgáfa 3.15
CERT-IS mælir með að uppfæra án tafa og fara eftir ráðleggingum frá viðkomandi
framleiðanda.
Tilvísanir:
[1] https://www.fortiguard.com/psirt/FG-IR-23-001
[2] https://blog.aquasec.com/jenkins-server-vulnerabilities
[3] https://www.jenkins.io/security/advisory/2023-03-08/