EN

Veikleikar hjá Fortinet, Cisco, Juniper, Adobe og Marimo

Tilkynnt hefur verið um veikleika hjá Fortinet, Cisco, Juniper, Adobe og Marimo. CERT-IS mælir með að uppfært sé eins fljótt og auðið er í útgáfu þar sem veikleikarnir hafa verið lagfærðir.

Fortinet FortiClient EMS

Veikleikinn CVE-2026-35616 með CVSSv3 veikleika stig upp á 9.1 gerir óauðkenndum ógnaraðila kleift að keyra óheimilaðan kóða (e. unauthorized code) eða skipanir. Vitað er til þess að verið sé að misnota veikleikann.

Cisco

Veikleikinn CVE-2026-20093 í Cisco IMC með CVSSv3 veikleika stig upp á 9.8 gerir ógnaraðila kleift að komast yfir kerfisréttindi. Annar veikleiki, CVE-2026-20160 í Cisco SSM On-Prem sem einnig er með CVSSv3 veikleika stig upp á 9.8 gerir ógnaraðila kleift að framkvæma skipanir með réttindi rótar notanda (e. root user).

Juniper

Juniper Networks hafa gefið út uppfærslur vegna fjölda veikleika meðal annars í Junos OS og Junos OS Evolved. Veikleikar sem leiða til aukinna kerfisréttinda (e. privilege escalation), álagsárása (e. denial of service) og keyrslu á skipunum (e. command execution). Alvarlegasti veikleikinn er CVE-2026-33784 með CVSSv3 veikleika stig upp á 9.8.

Adobe

Adobe hefur gefið út uppfærslu fyrir veikleikann CVE-2026-34621 í Acrobat Reader sem er með CVSSv3 veikleika stig upp á 8.6 og gerir ógnaraðila kleift að keyra meinfýsinn kóða (e. malicious code). Adobe tekur fram að verið sé að misnota þennan veikleika.

Marimo

Veikleikinn CVE-2026-39987 með CVSSv3 veikleika stig upp á 9.3 gerir ógnaraðila kleift að fjarkeyra kóða (e. remote code execution).

Scroll to Top