Borið hefur á svikaherferð sem beinist gegn rétthöfum .is léna. ISNIC varaði í dag við tölvupóstum þar sem óskað er eftir greiðslu eða endurnýjun á þjónustu hjá aðilanum DMS Iceland.
Fjöldi rétthafa .is léna hafa fengið slíka pósta. Áréttað er að póstarnir berast ekki frá ISNIC og eru líklega hluti af svikaherferð.
Viðtakendur eru hvattir til að sýna aðgát, smella ekki á tengla í póstunum og gefa hvorki upp persónu- eða greiðsluupplýsingar.
CERT-IS hvetur aðila sem fengið hafa slíkan póst að áframsenda hann á [email protected] eða tilkynna það í gegnum tilkynningagátt CERT-IS sem finna má hér.
Hér má lesa tilkynningu ISNIC í heild sinni.