Vegna árása á greiðslumiðlanir gefur CERT-IS út eftirfarandi tilmæli til fjármálafyrirtækja sem eru á lista yfir mikilvæga innviði.
CERT-IS beinir þeim tilmælum til fjármálastofnana sem tilheyra mikilvægum innviðum að þau:
- Fari yfir og skerpi á verklagsreglum vegna dreifðra álagsárása
- Verði enn meira á varðbergi varðandi slíkar árásir
- Fari yfir með starfsfólki hvernig virkja eigi varnir eigi slík árás sér stað til að stytta viðbragðstíma
Verði mikilvægir innviðir varir við árásir eða niðritíma sem hefur mikil áhrif á sína notendur eða viðskiptavini skal CERT-IS strax vera gert viðvart.