EN

Óvissustigi vegna öryggisgalla í Log4j aflétt

Ríkislögreglustjóri í samráði við netöryggissveit CERT-IS og Fjarskiptastofu aflétta óvissustigi almannavarna vegna Log4j veikleikans. Allir ómissandi innviðir og þjónusta starfa eðlilega og eru ekki skert eða takmörkuð. Rekstraraðilar kerfa hafa brugðist vel við undanfarnar vikur og náð tökum á veikleikanum.

Ekkert atvik hefur verið tilkynnt þar sem brotist hefur verið inn í kerfi með Log4j veikleikanum. Fylgst verður áfram náið með kerfum og hegðun þeirra ásamt þróun veikleikans á heimsvísu og hvaða áhrif hún gæti haft. Rekstraraðilar eru hvattir til að vakta kerfi sín sérstaklega og fylgjast með óeðlilegri hegðun sem og nýjum uppfærslum á Log4j kóðasafni.

Frekari upplýsingar veita: Guðmundur Arnar Sigmundsson, sviðsstjóri netöryggissveitarinnar CERT-IS, [email protected] eða Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu, [email protected]

Scroll to Top