Hinn mánaðarlegi Bótadagur (e. „Patch Tuesday“) var á þriðjudaginn þar sem Microsoft gaf út uppsafnaðar öryggisuppfærslur og viðvaranir vegna nýlegra veikleika. Samkvæmt tilkynningu frá Microsoft komu 98 öryggisuppfærslur, þar af ein zero-day öryggisgalli.
Eftirfarandi vörur frá Microsoft voru með sérstaklega hættulegum öryggisgöllum:
- Microsoft Office Sharepoint CVE-2023-21743 Gerir óþekktum aðila mögulegt að komast framhjá auðkenningu og tengjast kerfinu. (Elevation of privileged)
- Windows Cryptographic Services CVE-2023-21551 Veikleiki sem getur haft það í för með sér að árásar aðili geti fengið kerfis aðgang. (Elevation of privileged)
- Windows Layer 2 Tunneling Protocol (L2TP) CVE-2023-21556 Veikleikinn getur haft í för með sér að árásaraðili geti keyrt upp sinn eiginn kóða á kerfi notanda. (Remote code execution)
- Windows Secure Socket Tunneling Protocol (SSTP) CVE-2023-21548 Veikleikinn getur haft í för með sér að árásaraðili geti keyrt upp sinn eiginn kóða á kerfi notanda. (Remote code execution)
Einnig minnum við á mikilvægi þess að keyra eftirfarandi öryggisuppfærslur, en bandaríska netöryggisteymið CISA hefur metið þær sérstaklega áhættusamar:
- Microsoft Exchange CVE-2022-41080 Veikleikinn getur haft í för með sér að árásaraðili geti fengið aukinn aðgang innan kerfisins og keyrt upp sinn eiginn kóða á kerfi notanda. (Elevation of access, Remote code execution)
- Windows Advanced Local Procedure Call (ALPC) CVE-2023-21674 Veikleikinn getur haft í för með sér að árásaraðilar geti fengið aukinn aðgang að kerfunum. (Elevation of access)
Aðrir aðilar hafa einnig gefið út mikilvægar öryggisuppfærslur fyrir Patch Tuesday:
- Adobe – ýmsar öryggisuppfærslur fyrir Adobe forrit, meðal annars að geta keyrt upp kóða og fengið aukinn aðgang að kerfum.
- Intel – Öryggisveikleiki í Intel oneAPI Toolkits sem getur haft í för með sér aukinn kerfisaðgang árásaraðila.
- Zoom – Alvarlegir öruggisveikleikar sem gerir notenda að auka aðgengi sitt inni í kerfum, bæði fyrir Windows og MacOS.
CERT-IS mælir með að kerfisstjórar uppfæri ofangreind kerfi og forrit án tafar.