EN

Í tilefni af Singles Day og Svörtum Föstudegi

Nóvember er mánuður stórra netverslunardaga. Singles Day er afstaðinn, og fljótlega tekur við Svartur föstudagur, einn stærsti netverslunardagur ársins. Margir nýta þessa daga til að gera góð kaup og finna frábær tilboð.

CERT-IS hvetur alla sem nýta sér tilboðin og panta heimsendingu að hafa góða yfirsýn yfir þær pantanir sem von er á. Taka saman á einn stað allar þær verslanir sem verslað er við og einnig hver mun sjá um afhendinguna ef það er gefið upp.

Árásaraðilar hafa lengi beitt vefveiðum í nafni dreifingaraðila í von um að svíkja t.d. kortaupplýsingar út úr fórnarlömbunum. Einnig hefur borið á svikum þar sem árásaraðilar herma eftir þekktum netverslunum, auglýsa veglega afslætti á samfélagsmiðlum og veiða fólk þaðan á svikasíðurnar.

CERT-IS hvetur fólk að vera á varðbergi, sérstaklega gagnvart öllum smáskilaboðum tengdum kaupa á netinu. Ef einhverjar grunsemdir vakna um að sendandi sé ekki sá hann segist vera er best að fara beint á vefsíðu fyrirtækisins/stofnunarinnar í stað þess að smella á hlekki í skilaboðum.

Scroll to Top