EN

CERT-IS varar við Facebook svikaherferð

CERT-IS þykir ástæða til þess að vara við Facebook svikaherferð sem hefur færst í aukana á undanförnum dögum. Svindlið lýsir sér þannig að fórnalamb fær skilaboð frá vini á vinalista þar sem honum er óskað til hamingju með að hafa unnið í leik eða spurt er einfaldlega um símanúmer. Í kjölfarið biður árásaraðilinn annaðhvort um kóða sem berst í kjölfarið í síma fórnarlambsins eða óskar eftir að ný auðkenning sem kemur upp í símanum sé samþykkt.

Ef fórnarlamb fylgir þessum skrefum er árásaraðilinn kominn inn.

Markmiðið með slíku innbroti er meðal annars að:

  • Komast yfir öll spjöll og finna upplýsingar eins og kreditkortanúmer eða lykilorð inn á aðra reikninga eins og netpóst eða banka
  • Brjótast inn á önnur svæði sem notast við rafræn skilríki
  • Senda skilaboð á fleiri aðila og halda svikaherferðinni gangandi

CERT-IS vill beina því til fólks að vera á varðbergi gagnvart svona svindlum og hugsa sig tvisvar um áður en svona skilaboðum er svarað eða leiðbeiningum er fylgt.

Hægt er að senda ábendingar um svik sem þessi til CERT-IS í gegnum vefsíðuna okkar á cert.is en einnig er hægt að áframsenda svikapósta og skjáskot af svikaskilaboðum á [email protected].

CERT-IS vill einnig árétta að það er engin skömm fólgin í því að falla fyrir svona svikaherferðum. Svona herferðir eru þaulskipulagðar, og oft frekar eðlileg samskipti á góðri íslensku sem gætu við fyrstu sýn átt sér lögmætar ástæður.

Ég fékk skilaboð sem ég held að séu svikaskilaboð, hvað á ég að gera? 

  • Ekki svara skilaboðunum.
  • Ekki ýta á neina hlekki sem þér eru sendir.
  • Ef mögulegt, þá er gott að staðfesta gegnum annan miðil að viðkomandi sé í raun og veru að óska eftir símanúmerinu þínu. Ef svo var ekki, benda viðkomandi á að það sé mögulega búið að komast yfir reikninginn þeirra.

Ég svaraði skilaboðum sem ég sé núna séu svikaskilaboð, hvað á ég að gera? 

  • Ekki senda árásaraðilum frekari upplýsingar, sér í lagi ef þau falast eftir númerum sem koma með skilaboðum í símann þinn.
  • Skipta um lykilorð.
  • Skrá reikninginn út af öllum öðrum tækjum. Það er hægt með því að fara í lykilorðastillingar og velja að skoða staðsetningu innskráninga og þar velja að skrá út úr öllum tækjum. https://www.facebook.com/help/289066827791446?helpref=faq_content

Það er óprúttinn aðili á reikningnum mínum. Hvernig get ég komist yfir reikninginn aftur? 

  • Það er hægt að endurheimta reikninginn með því að fara í gegnum https://www.facebook.com/hacked og fylgja þeim leiðbeiningum sem eru þar.
  • Beðið vini þína um að fara inn á Facebook síðuna þína og fara þar sem eru þrír punktar … þar undir velja “Tilkynna”, svo “I want to help” og svo “Hacked”.
  • Athugið að það getur tekið smá tíma fyrir Facebook að gefa þér aðgang að reikningnum ef hann hefur verið tekinn yfir.

Ég komst aftur inn á reikninginn minn, hvað á ég að gera til að þetta gerist ekki aftur? 

  • Skipta um lykilorð.
  • Fara yfir öryggisstillingarnar þínar á Facebook.
  • Það er gott að láta aðra vita að þú hafir lent í óprúttnum aðila sem hafi tekist að komast yfir reikninginn þinn, annaðhvort með því að senda vinum þínum einkaskilaboð eða búa til Facebook status.

Deildu núna

Categories

Post Tags

Scroll to Top