Alvarlegir veikleikar í PHP (PHP2Shell)

Þann 21. október gaf PHP út neyðaruppfærslur vegna tveggja alvarlegra veikleika sem kallaðir hafa verið PHP2Shell (CVE-2026-109618 og CVE-2026-109619). Báðir veikleikarnir eru í virkri misnotkun og komnir á KEV-lista CISA yfir misnotaða veikleika.

CERT-IS hvetur rekstraraðila til að uppfæra þau kerfi sem byggð eru á PHP strax og kanna hvort merki séu um innbrot.

PHP

Misnotkun á veikleikunum getur gert óauðkenndum ógnaraðila kleift að fjarkeyra kóða (e. remote code execution) á vefþjónum sem keyra PHP. Veikleikarnir eru í PHP sjálfu en ekki í vefkerfum sem byggja á því. Því dugar ekki að uppfæra til dæmis WordPress, Drupal eða Joomla, heldur þarf að uppfæra PHP.

Allar PHP-uppsetningar sem svara vefbeiðnum eru berskjaldaðar, þar á meðal PHP-FPM, Apache með mod_php, php-cgi, og LiteSpeed.

– CVE-2026-109618 stafar af villu í meðhöndlun á minnisþurrð (e. out-of-memory).
– CVE-2026-109619 stafar af því að innri staða getur vísað á minni sem búið er að losa (e. use-after-free) en slíkar villur geta leitt til innspýtingu kóða (e. code injection).

Veikleikarnir eru til staðar í eftirfarandi útgáfum:

ÚtgáfaÚtgáfa með veikleikaLagfært í

PHP 8.5 Eldri en 8.5.11 8.5.12
PHP 8.4 Eldri en 8.4.26 8.4.27
PHP 8.3 Eldri en 8.3.35 8.3.36
PHP 8.2 Eldri en 8.2.34 8.2.35
PHP 8.1 og eldri Allar Engin opinber uppfærsla

PHP 8.1 og eldri útgáfur fá ekki lengur öryggisuppfærslur frá PHP. Rekstraraðilar þeirra þurfa að uppfæra í studda útgáfu eða nota lagfæringar frá dreifingaraðila (e. backport).

Tilvísanir
[1] https://www.php.net/archive/2026.php#2026-10-21-5
[2] https://github.com/NCSC-NL/php2shell/wiki
[3] https://www.cisa.gov/known-exploited-vulnerabilities-catalog?field_cve=CVE-2026-109618
[4] https://security.paloaltonetworks.com/CVE-2026-109618

Scroll to Top