Netöryggissveit Póst- og fjarskiptastofnunar, CERT-IS, varar við bylgju
svika sem nú er í gangi. Um er að ræða nokkrar tegundir af svikum en ekki er talið að þau tengist með einum eða öðrum hætti.
Vegna þess hve margir hafa fallið fyrir þeim er talin ástæða til að
hvetja fólk til að vera sérstaklega vel á varðbergi fyrir svikum
sem þessum.
Fölsk SMS skilaboð í nafni Landsbankans
Send eru SMS í nafni Landsbankans þar sem óskað er eftir að viðkomandi fari á vefsíðu til að staðfesta símanúmer sitt.
SMS skilaboðin eru látin líta út fyrir að vera send í sama nafni og
Landsbankinn sendir öryggisnúmer frá þegar viðkomandi skráir sig
inn á vefsíðu Landsbankans. Vegna þess töldu margir að um
raunveruleg skilaboð væri að ræða.