VAKI

Veikleika og netógna viðvörunarkerfi CERT-IS veitir fyrirtækjum og stofnunum á Íslandi tímanlegar upplýsingar um netógnir og veikleika sem geta haft áhrif á kerfi og stafrænar eignir þeirra.

Tímanleg viðvörun um netógnir

Kerfið safnar og vinnur úr upplýsingum um netógnir frá ólíkum innri og ytri upplýsingaveitum og ber þær saman við stafrænan eignalista fyrirtækisins eða stofnunarinnar.

Ef ógn greinist/finnst í tengslum við eign af listanum fær fyrirtækið eða stofnunin sjálfkrafa tilkynningu. Í hverri tilkynningu kemur fram hvaða ógn hefur greinst, hvaða stafrænu eign hún tengist og mat á því hversu brýnt er að bregðast við.

Tilkynningunni fylgja upplýsingar sem styðja fyrirtækið eða stofnunina við að bregðast við ógninni. Hún felur þó ekki í sér staðfestingu á öryggisatviki.

Tilkynningar og veikleikaskýrslur eru sendar með tölvupósti. Veikleikaskýrslum fylgja nánari tæknilegar upplýsingar á CSV-sniði.

Þjónustan styður þannig við og styrkir núverandi netöryggisvarnir fyrirtækisins eða stofnunarinnar.

Hvers konar ógnir greinir kerfið?

Tilkynningar geta meðal annars varðað:

  • Tæknilega veikleika
  • Innbrot eða óheimilan aðgang að kerfum
  • Spilliforrit eða sýkt kerfi/búnað

Skráning

Öll fyrirtæki og stofnanir á Íslandi geta skráð sig í þjónustuna. Þjónustan er gjaldfrjáls.

Til að skrá sig þarf að senda tölvupóst á [email protected] og gefa upp:

  • Tengilið sem tekur við tilkynningum eða sér um uppsetningu fyrir móttöku þeirra
  • Stafrænan eignalista fyrirtækisins eða stofnunarinnar

Stafrænn eignalisti getur innihaldið:

  • IP-tölur

  • IP-bil

  • lén

  • AS-númer (ASN)

Athugið að stafrænar eignir sem taldar eru upp á listanum þurfa að snúa að internetinu, vera staðsettar á Íslandi og vera í eigu eða umsjón fyrirtækisins eða stofnunarinnar.

Breytingar á eignalista

Ef þörf er á uppfærslu á stafrænum eignalista, upplýsingum um fyrirtækið eða stofnunina, tengiliðum eða öðrum upplýsingum sem tengjast þjónustunni má senda uppfærðar upplýsingar á [email protected].

Nánari upplýsingar

Ef spurningar vakna um þjónustuna, skráningu eða stafræna eignalista má senda fyrirspurn á [email protected].

Scroll to Top