Veikleikar hjá Cisco, Oracle og pgAdmin

CERT-IS mælir með að uppfært sé eins fljótt og auðið er í útgáfu þar sem veikleikarnir hafa verið lagfærðir.

Cisco

Cisco hefur gefið út öryggisuppfærslu vegna veikleika og nýveilu(e. Zero Day) sem er í virkri notkun. CVE-2026-76460

Cisco hefur einnig sent frá sér tilkynningu og ráðleggingar vegna fjölda annarra veikleika sem finna má á vefsíðu þeirra hér að neðan.

Oracle

Oracle hefur sent frá sér uppfærslur vegna yfir 800 veikleika. Af þessum 800 veikleikum er 240 þeirra veikleikar sem gerir ógnaraðila kleift að fjarkeyra kóða án auðkenningar.

pgAdmin

Gefin hefur verið út uppfærsla vegna alvarlegs veikleika í pgAdmin, sem er stjórnunartól fyrir Postgres. Veikleikinn gerir ógnaraðila kleift að komast framhjá auðkenningu og öðlast kerfisstjóraréttindi. CVE-2026-86861 CVE-2026-86864

Scroll to Top