EN

Vefveiðar

Vefveiðar eru algengasta form netárása í dag. Ásamt gífurlegum vexti í vefveiðum á hverju ári hafa þær einnig orðið mun fágaðri en það sem sást áður fyrr. Það er greinilegt að mun meiri vinna er lögð í margar af vefveiðaherferðum í dag og geta þær litið mjög raunverulega út.

Vefveiðar eru notaðar til að ráðast beint á einstaklinga til að svíkja út peninga, persónulegar upplýsingar eða til að komast inn í tölvukerfi hjá fyrirtækjum. Í þeim tilvikum sem árásaraðilinn kemst inn i tölvukerfi fyrirtækja í gegnum vefveiðar er markmiðið oftar en ekki að fremja stærri glæp í formi gagnastuldar, gagnagíslatöku eða fjársvika.

Mikilvægt er að þekkja einkenni vefveiða og fræða starfsfólk um algengustu einkenni slíkra pósta eða skilaboða til að koma í veg fyrir tjón.

CERT-IS tekur við upplýsingum um vefveiðar í gegnum netfangið [email protected]. Slíkar tilkynningar nýtast til að vara við yfirstandandi herferðum og greina breytingar í svikaaðferðum. Sé óskað eftir viðbragði þarf okkur einnig að berast tilkynning í gegnum rauða takkann eða með pósti á [email protected]. Einfaldast er að framsenda vefveiðipósta beint á það netfang eða skjáskot af SMS skilaboðum.

  • Vefveiðar og einstaklingar
  • Vefveiðar og fyrirtæki

Scroll to Top