Hoppa yfir valmynd

CERT-IS varar við svikasímtölum úr kunnuglegum símanúmerum

15. nóv. 2023

CERT-IS telur ástæðu til að vara við svikasímtölum sem hafa það markmið að plata fórnarlömb til að heimila innskráningu í heimabanka með rafrænum skilríkjum.  

Svikasímtölin koma úr símanúmerum sem látin eru líkjast númerum íslenskra banka og greiðslufyrirtækja. Sá sem hringir talar ensku og segist vinna í fjarvinnu til að gefa skýringu á því. Aðilinn er sagður mjög sannfærandi en hann reynir að lokka fórnarlömb til að innskráningu í heimabanka með rafrænum skilríkjum. Þegar innskráningin er leyfð er nær samstundis reynt að skuldfæra kreditkort viðkomandi.